Fréttir


14.11.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Akraness vegna skólalóðar í Skógahverfi

Skipulagsstofnun staðfesti, 13. nóvember 2019, breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017 sem samþykkt var í sveitarstjórn 29. september 2019.

Breytingin felst í að stækka skólalóð Skógahverfis, stofnanasvæði S16 til norðurs um 0,7 ha á kostnað íbúðarbyggðar Íb13 sem minnkar sem því nemur.

Málsmeðferð var óveruleg breyting samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.