Fréttir


6.7.2023

Staðfesting á Aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2021-2033

Skipulagsstofnun staðfesti 5. júlí 2023 Aðalskipulag Mýrdalshrepps 2021-2033 sem samþykkt var í sveitarstjórn 22. mars 2023.

Um er að ræða endurskoðun á Aðalskipulag Mýrdalshrepps 2012-2028 sem fellur úr gildi við gildistöku hins nýja aðalskipulags.

Málsmeðferð var samkvæmt 30.-32. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagið á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar það hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.