Fréttir


  • ASK Kópavogs 2019-2040

28.12.2021

Staðfesting á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040

Skipulagsstofnun staðfesti, 28. desember 2021, Aðalskipulag Kópavogs 2019-2040 og skrá yfir vegi í náttúru Íslands, sem samþykkt voru í bæjarstjórn 28. september 2021. Við gildistöku aðalskipulagsins fellur úr gildi Aðalskipulag Kópavogs 2012-2024 ásamt síðari breytingum.

Málsmeðferð var samkvæmt 30. - 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagið á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar það hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.