Fréttir


12.3.2024

Skógrækt í Álfadal, Álfheimum og Skógarbrekkum

Umhverfismat framkvæmda - ákvörðun um matsskyldu

Framkvæmd ekki háð mati á umhverfisáhrifum

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að Skógrækt í Álfadal, Álfheimum og Skógarbrekkum, Grímsnes- og Grafningshreppi, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021. 

Ákvörðun Skipulagsstofnunar er aðgengileg hér, ásamt greinargerð framkvæmdaraðila, umsögnum umsagnaraðila og viðbrögðum framkvæmdaraðila.

Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 15. apríl 2024.