Fréttir


  • Borgartún 7b

26.9.2023

Sérfræðingur í skipulagsgerð

Skipulagsstofnun óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa við fjölbreytt verkefni í skipulagsmálum með megináherslu á aðal- og svæðisskipulag.
Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að takast á við fjölbreytt viðfangsefni og getu til að leysa verkefni bæði sjálfstætt og í samvinnu við aðra.

Helstu verkefni:

  • Ráðgjöf og leiðbeiningar um skipulagsgerð sveitarfélaga.
  • Ýmis verkefni við stefnumótun, miðlun, leiðbeiningar og kynningarmál um skipulagsmál.
  • Þátttaka í vinnu við þróun leiðbeininga, laga og reglugerða á sviði skipulagsmála.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, svo sem á sviði borgarhönnunar, arkitektúrs eða skipulagsfræði.
  • Þekking eða reynsla sem nýtist í starfi.
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu á sviði skipulagsmála.
  • Færni í notkun landfræðilegra upplýsingakerfa er æskileg.
  • Nákvæmni og ögun í vinnubrögðum.
  • Færni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót.
  • Hæfni til að hagnýta þekkingu og reynslu í ólíkum verkefnum.
  • Frumkvæði, skapandi hugsun og metnaður til að ná árangri.
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi ríkisins og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Við hvetjum öll áhugasöm, óháð kyni og uppruna, til að sækja um.
Um 100% starf er að ræða.

Æskilegt er að starfsmaðurinn geti hafið störf sem fyrst. Gert er ráð fyrir að gagnkvæmur reynslutími sé sex mánuðir frá ráðningu.

Umsóknarfrestur um starfið er til og með 2. október 2023

Nánari upplýsingar og umsókn má finna á www.vinnvinn.is