Fréttir


8.5.2023

Opinn kynningarfundur fyrir Skipulagsgátt 16. maí

Skipulagsstofnun býður til opins kynningarfundar um Skipulagsgátt þann 16. maí næstkomandi. Fundurinn hefst klukkan 15.


Skipulagsgátt er landfræðileg gagna- og samráðsgátt um skipulag, umhverfismat og framkvæmdir sem hefur verið í smíðum undanfarin misseri og er nú tilbúin til notkunar. Opnun Skipulagsgáttar markar nýja tíma í aðgengi og miðlun upplýsinga um skipulagsmál - bæði hvað varðar fagfólk en ekki síður almenning sem vill hafa áhrif á hið skipulagða umhverfi. Frá og með 1. júní verða skipulagstillögur og umhverfismat fyrir framkvæmdir og áætlanir kynntar í gáttinni ásamt útgefnum framkvæmdaleyfum.


Fundurinn verðu haldinn í húsakynnum Skipulagsstofnunar í Borgartúni 7 á meðan að húsrúm leyfir, en einnig verður hægt að fylgjast með fundinum í streymi. Gefst þar tækifæri til að kynnast Skipulagsgáttinni og þeim möguleikum sem hún býður upp á fyrir notendur – hvort sem þeir eru skipulagsfulltrúar, ráðgjafar, framkvæmdaaðilar, aðrir hagsmunaaðilar, eða almenningur.


Mikilvægt er að gestir skrái sig á fundinn, vilji þeir mæta á staðinn í Borgartún. Hlekkur á streymi verður birtur fyrir fundinn á heimasíðu Skipulagsstofnunar og á viðburði kynningarfundarins á Facebook.