Fréttir


2.10.2013

Úthlutun úr Rannsóknar- og þróunarsjóði Skipulagsstofnunar 2013

Skipulagsstofnun auglýsti í júní síðastliðnum eftir umsóknum um styrki úr Rannsóknar- og þróunarsjóði Skipulagsstofnunar með umsóknarfresti til 1. ágúst. Skipulagsstofnun hefur nú lokið mati á þeim umsóknum sem bárust, en þær voru 11 talsins. Ákveðið hefur verið að veita styrki til eftirtalinna verkefna:
 

Landslagsgreining – staðareinkenni – verkfæri til byggða- og atvinnuþróunar. Verkefnisstjóri: Auður Sveinsdóttir. Styrkfjárhæð kr. 600.000.-

Megindrættir íslenskrar skipulagslöggjafar – lagarammi og réttarframkvæmd. Verkefnisstjóri: Aðalheiður Jóhannsdóttir. Styrkfjárhæð kr. 1.000.000.-


Rafræn ferðavenjukönnun. Verkefnisstjóri: Kristveig Sigurðardóttir. Styrkfjárhæð kr. 1.500.000.-


Samhengi svæðis- og aðalskipulagsgerðar við viðhald og styrkingu ímyndar svæða og möguleg áhrif þess á byggðaþróun.
Verkefnisstjóri: Matthildur Kr. Elmarsdóttir. Styrkfjárhæð kr. 1.500.000.-