Fréttir


9.2.2011

Sjóvarnir í Þorlákshöfn, austan hafnar og neðan golfvallar

Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að framkvæmdirnar skuli ekki háðar mati á umhverfisáhrifum

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að sjóvarnir í Þorlákshöfn, austan hafnar og neðan golfvallar skuli ekki háðar mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum. nr. 106/2000 m.s.br.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.  Hana er einnig að finna á hér.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til  12. mars 2011.