Fréttir
Aukin framleiðsla á bleikju og laxaseiðum hjá Fiskeldinu Haukamýrargili ehf., Norðurþingi
Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að aukin
framleiðsla á bleikju og laxaseiðum hjá Fiskeldinu Haukamýrargili ehf.,
Norðurþingi, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra. Kærufrestur er til 26. júní 2010. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má sjá í heild sinni hér.
