Fréttir


14.8.2014

Skipulagsdagurinn 2014 - Opnað hefur verið fyrir skráningu

Grand Hótel Reykjavík 29. ágúst kl. 10-17

Grand Hótel 29. ágúst kl. 10-17

Opnað hefur verið fyrir skráningu á Skipulagsdaginn, sem er árlegur samráðsfundur Skipulagsstofnunar og sveitarfélaga. Fundurinn verður að þessu sinni haldinn á Grand Hótel í Reykjavík, þann 29. ágúst n.k. Sjá meðfylgjandi dagskrá.

Til fundarins er boðið sveitarstjórnarmönnum, fulltrúum í skipulagsnefndum, skipulagsfulltrúum og öðrum starfsmönnum sveitarfélaga sem annast skipulagsmál.

Skrá þarf sig hér að neðan á heimasíðu Skipulagsstofnunar fyrir 27. ágúst. Þátttaka í fundinum er gjaldfrjáls en þátttakendur greiða sjálfir fyrir hádegisverð. Húsið verður opnað kl. 9:30 en fundur hefst kl. 10:00 og lýkur með léttum veitingum kl. 17:00. 

Þar sem fundurinn er nú haldinn í upphafi kjörtímabils verður sjónum sérstaklega beint að ábyrgð og helstu verkefnum sveitarstjórna og skipulagsnefnda varðandi skipulagsmál, enda margir að koma nýir inn á þann vettvang. Fjallað verður sérstaklega um endurskoðun aðalskipulags, en eitt af fyrstu verkefnum skipulagsnefnda á nýju kjörtímabili er að ákveða hvort þörf sé á að endurskoða aðalskipulag sveitarfélagsins. Þá mun verða greint frá málum sem eru til umfjöllunar á vettvangi Sambands íslenska sveitarfélaga auk þess sem fulltrúar ýmissa sveitarfélaga verða með innlegg um nýjar leiðir við íbúasamráð, rafræna stjórnsýslu, svæðisskipulagsvinnu á höfuðborgarsvæðinu og fleira.

Fundinum verður einnig streymt í gegnum heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga og Skipulagsstofnunar.

Grand Hótel býður fundargestum eftirfarandi tilboð á gistingu: Eins manns herbergi með morgunverði að upphæð 19.500 kr. nóttin og tveggja manna herbergi með morgunverði að upphæð 21.500 kr.nóttin. Þeir sem vilja nýta sér tilboðið hafi samband við  Jóhann Sigurólason Grand Hótel í síma 5148001 eða með tölvupósti á netfangið johann@grand.is