Fréttir


31.1.2024

Móttaka, geymsla og urðun á óvirkum úrgangi á Njarðvíkurheiði

Umhverfismat framkvæmda - ákvörðun um matsskyldu

Framkvæmd ekki háð mati á umhverfisáhrifum

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að  móttaka, geymsla og urðun á óvirkum úrgangi á Njarðvíkurheiði í Reykjanesbæ skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar, greinargerð framkvæmdaraðila, umsagnir umsagnaraðila og viðbrögð framkvæmdaraðila við þeim má finna hér.

Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 4. mars 2024.