Fréttir


11.12.2023

Hringrás, Álhellu 1 í Hafnarfirði

Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu

Framkvæmd ekki háð mati á umhverfisáhrifum

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að starfsemi Hringrásar að Álhellu 1 í Hafnarfirði skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar er aðgengileg hér ásamt greinargerð framkvæmdaraðla, umsögnum umsagnaraðila og viðbrögðum framkvæmdaraðila.

Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 12. janúar 2024.