Fréttir


22.1.2024

Gilsárvirkjun í Múlaþingi

Umhverfismat framkvæmda - ákvörðun um matsskyldu

Framkvæmd háð mati á umhverfisáhrifum

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að Gilsárvirkjun, 6,7 MW vatnsaflsvirkjun í Múlaþingi skuli háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar, greinargerð framkvæmdaraðila, umsagnir umsagnaraðila og viðbrögð framkvæmdaraðila við þeim má finna hér .

Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 23. febrúar 2024.