Fréttir


12.3.2020

Framleiðsla vetnis og metans við Hellisheiðarvirkjun, Sveitarfélaginu Ölfusi

Mat á umhverfisáhrifum - tillaga að matsáætlun í kynningu

Frestur til athugasemda er til 25. mars 2020.

Nordur Renewable Iceland ehf. hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar framleiðslu á vetni og metan við Hellisheiðarvirkjun.

Tillagan er aðgengileg hér og hjá Skipulagsstofnun. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 25. mars 2020 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is