Fréttir


24.3.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar vegna Austureyjar 1 og 3

Skipulagsstofnun staðfesti, 23. mars 2023, breytingu á Aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 sem samþykkt var í sveitarstjórn 18. janúar 2023.

Í breytingunni felst að frístundalóðin að Eyrargötu 9 (F40), í landi Austureyjar 1 og 3, er breytt í svæði fyrir verslun og þjónustu (VÞ48). Einnig er gerð breyting á aðkomuleið.

Málsmeðferð var samkvæmt 1 . mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.