Fréttir


15.1.2024

Breyting á grunnvatnstöku Landsvirkjunar á Þeistareykjum, Þingeyjarsveit

Umhverfismat framkvæmda - ákvörðun um matsskyldu

Framkvæmd ekki háð mati á umhverfisáhrifum 

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að fyrirhuguð breyting á grunnvatnstöku Landsvirkjunar á Þeistareykjum, Þingeyjarsveit, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.

Gögn málsins eru aðgengileg hér:

Ákvörðun Skipulagsstofnunar , greinargerð framkvæmdaraðila , umsagnir umsagnaraðila og viðbrögð framkvæmdaraðila.

Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 19. febrúar 2024.