Fréttir


27.2.2024

Botnsvirkjun í Dýrafirði, Ísafjarðarbæ

Umhverfismat framkvæmda - ákvörðun um matsskyldu

Framkvæmd háð mati á umhverfisáhrifum

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að Botnsvirkjun í Dýrafirði, Ísafjarðarbæ, skuli háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar er aðgengileg hér, ásamt greinargerð framkvæmdaraðila, umsögnum umsagnaraðila og viðbrögðum framkvæmdaraðila.

Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 28. mars 2024.