Mál í kynningu


21.3.2023

Tillögur að breytingu á aðalskipulagi Vestmannaeyja og nýju deiliskipulagi vegna gosminnisvarða, útsýnisstaða og stíga

Athugasemdafrestur er til 25. apríl 2023

Bæjarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035 vegna gosminnisvarða, útsýnisstaða og stíga. Samhliða er auglýst tillaga að nýju deiliskipulagi svæðisins.

Skipulagsgögn eru til sýnis á vef sveitarfélagsins www.vestmannaeyjar.is.

Athugasemdir þurfa að berast í afgreiðslu Ráðhúss Vestmannaeyja, Kirkjuvegi 50, 900 Vestmannaeyjum, eða á netfangið dagny@vestmannaeyjar.is eigi síðar en 25. apríl 2023.