Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra vegna verslunar og þjónustu í landi Barkarstaða
Athugasemdafrestur er til 9. maí 2024
Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings eystra 2020-2032 vegna verslunar og þjónustu í landi Barkarstaða.
Skipulagsgögn eru til sýnis í Skipulagsgátt.
Athugasemdir þurfa að berast í Skipulagsgátt eða skriflega til skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra að Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli eigi síðar en 9. maí 2024.