Mál í kynningu


30.5.2017

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Hraungerðishrepps í Flóahreppi vegna stækkun golfvallar

Athugasemdafrestur er til 6. júlí 2017

Sveitarstjórn Flóahrepps hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hraungerðishrepps 2003-2015 vegna stækkun golfvallar úr landi Laugardæla.

Tillagan er til sýnis til 6. júlí 2017 á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Dalbraut 12, Laugarvatni og á slóðinni www.sbf.is og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir þurfa að berast til skipulagsfulltrúa, Dalbraut 12, eða á netfangið petur@utu.is eigi síðar en 6. júlí 2017.