Mál í kynningu


4.5.2023

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar, vegna íbúðarbyggðar ÍB8 í Ölduhverfi í landi Kropps

Athugasemdafrestur er til 19. júní 2023

Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 þar sem íbúðum innan íbúðarbyggðar ÍB8 í Ölduhverfi í landi Kropps er fjölgað úr 80-100 í 213.

Skipulagsgögn eru til sýnis á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9 í Hrafnagilshverfi og á vef sveitarfélagsins www.esveit.is

Athugasemdir þurfa að berast til skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9, Hrafnagilshverfi, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is eigi síðar en 19. júní 2023.