Mál í kynningu


9.5.2022

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar vegna breyttrar landnotkunar á Hauganesi

Athugasemdafrestur er til 13. júní 2022

Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna breyttrar landnotkunar á Hauganesi. Breytingunni er ætlað að afmarka betur þá landnotkun sem fyrir er og styðja við atvinnulíf og er þéttbýlismörkum m.a. breytt. Samhliða er auglýst tillaga að deiliskipulagi á Hauganesi.

Tillögurnar eru til sýnis í Ráðhúsi Dalvíkurbyggðar, á vef sveitarfélagsins www.dalvikurbyggd.is og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir þurfa að berast á skrifstofu Dalvíkurbyggðar, Ráðhúsi, 620 Dalvík eða í tölvupósti til skipulags- og tæknifulltrúa á netfangið helgairis@dalvikurbyggd.is eigi síðar en 13. júní 2022.