Mál í kynningu


29.3.2019

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Borgarfjarðarhrepps vegna iðnaðarsvæðis í landi Geitlands

Athugasemdafrestur er til 13. maí 2019.

 

Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Borgarfjarðarhrepps 2004-2016 vegna iðnaðarsvæðis í landi Geitlands og stækkunar vatnsverndarsvæðis.

Tillagan er til sýnis á hreppsstofu Bakkagerði, Borgarfirði Eystri, á vef sveitarfélagsins www.borgarfjordureystri.is og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir þurfa að berast til skipulags- og byggingarfulltrúa Borgarfjarðarhrepps, Hafnargötu 28, 710 Seyðisfirði eða á netfangið sigurdur.jonsson@efla.is, eigi síðar en 13. maí 2019.