Mál í kynningu


20.1.2023

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar vegna stækkunar þéttbýlis í Reykholti og íbúðarbyggðar í landi Breiðabólsstaðar II

Athugasemdafrestur er til 9. mars 2023

Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022. Einnig er auglýst tillaga að nýju deiliskipulagi svæðisins.

Í tillögu að breytingu aðalskipulagsins felst stækkun þéttbýlis í Reykholti og stækkun íbúðarbyggðar Í3 í landi Breiðabólsstaðar II.

Skipulagsgögn eru til sýnis á vef sveitarfélagsins, www.borgarbyggd.is.

Athugasemdir þurfa að berast til skipulagsfulltrúa Borgarbyggðar í ráðhúsi sveitarfélagsins, Digranesgötu 2, 310 Borgarnesi eða á netfangið skipulag@borgarbyggd.is eigi síðar en 9. mars 2023.