Mál í kynningu


21.3.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hornafjarðar vegna heimildar fyrir gistingu við Heppuveg 6 á Höfn

Skipulagsstofnun staðfesti 21. mars 2024 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Hornafjarðar 2012-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 14. desember 2023.

Í breytingunni felst að heimiluð verður gisting fyrir ferðamenn í allt að 12% húsnæðis við Heppuveg 6 á Höfn, þess hlutar sem er innan miðsvæðis, M1, í gildandi aðalskipulagi.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.