Mál í kynningu


21.3.2013

Efnistaka úr farvegi Múlakvíslar og bygging varnargarða á Mýrdalssandi í Mýrdalshreppi.

Mat á umhverfisáhrifum - athugun Skipulagsstofnunar.

Kynningartími stendur frá 21. mars til 3. maí 2013.

Vegagerðin hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um efnistöku úr farvegi Múlakvíslar og byggingu varnargarða á Mýrdalssandi í Mýrdalshreppi.

Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 21. mars til 3. maí 2013 á eftirtöldum stöðum: Á bæjarskrifstofu Mýrdalshrepps, Héraðsbókasafni Vestur- Skaftafellssýslu, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Frummatsskýrslu má skoða hér.

Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 3. maí 2013 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.