Efnistaka vegna endurbyggingar varnargarða og brúar á Múlakvísl
Mat á umhverfisáhrifum - tillaga að matsáætlun
Vegagerðin hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna efnistöku fyrir endurbyggingu varnargarða og brúar yfir Múlakvísl, Mýrdalshreppi.
Allir geta kynnt sér tillöguna og gert athugasemdir við hana. Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og berast Skipulagsstofnun, Laugavegi 166 150 Reykjavík, eigi síðar en 18. janúar 2013. Athugasemdir má einnig senda á netfangið sigurdur@skipulagsstofnun.is. Tillaga að matsáætlun er aðgengileg hér.
Skipulagsstofnun