Efnistaka í landi Hvamms í Ölfusi
Mat á umhverfisáhrifum - Athugun Skipulagsstofnunar
Kynningartími frummatsskýrslu er til 2. ágúst 2012
Kynningartími stendur frá 21. júní til 2. ágúst 2012
Bölti ehf. hefur tilkynnt til Skipulagsstofnunar um efnistöku í landi Hvamms í Sveitarfélaginu Ölfusi.
Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 21. júní til 2. ágúst 2012 á eftirtöldum stöðum: Á bæjarskrifstofum Sveitarfélagsins Ölfus, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Frummatsskýrslu má skoða hér.
Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 2. ágúst 2012 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.
Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000 m.s.b.
Skipulagsstofnun