Mál í kynningu


26.7.2010

Auglýsing um skipulag - Sandgerðisbær

Tillaga að aðalskipulagi Sandgerðisbæjar 2008-2024

Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar auglýsir hér með tillögu að aðalskipulagi Sandgerðisbæjar 2008-2024 skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, ásamt umhverfisskýrslu skv. 7. gr. laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana.

Tillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofu Sandgerðisbæjar, Vörðunni, Miðnestorgi 3, Sandgerðisbæ og í sýningarsal Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, Reykjavík frá og með 26. júlí til og með 10. september 2010. Tillöguna má einnig skoða á heimasíðu Sandgerðisbæjar, www.sandgerdi.is og á heimasíðu Kanon arkitekta, www.kanon.is og VSÓ Ráðgjafar, www.vso.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til þess að skila inn athugasemdum er til og með 10.september. Skila skal athugasemdum á bæjarskrifstofur Sandgerðisbæjar, Miðnestorgi 3, 245 Sandgerði. Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests telst samþykkur henni.
Forseti bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar.