Mál í kynningu


22.2.2023

Efnistaka í Gandheimum, Hvalfjarðarsveit

Umhverfismat framkvæmda - Matsáætlun í kynningu

Umsagnarfrestur er til 24. mars 2023

Námuféjlagið ehf. hefur lagt fram matsáætlun til Skipulagsstofnunar vegna umhverfismats um efnistöku í Gandheimum í Hvalfjarðarsveit. 

Matsáætlunin liggur frammi til kynningar á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar Innrimel 3, Hagamel, Hvalfjarðarsveit og hjá Skipulagsstofnun Borgartúni 7b frá 23. febrúar til 24. mars 2023.

Matsáætlunin er aðgengileg hér

Allir geta kynnt sér áætlunina og veitt umsögn.

Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 24. mars 2023 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.