Allt að 5.000 tonna framleiðsla á laxi í Berufirði
Mat á umhverfisáhrifum - tillaga að matsáætlun í kynningu
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til 28. júlí 2016
Laxar fiskeldi ehf. hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum allt að 5.000 tonna framleiðslu á laxi í Berufirði.
Tillagan er aðgengileg hér og hjá Skipulagsstofnun. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 28. júlí 2016 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.