Matsskyld mál
Í 1. viðauka við lög um mat á umhverfisáhrifum eru taldar upp þær framkvæmdir sem eru alltaf háðar mati á umhverfisáhrifum. Óheimilt er að gefa út leyfi til framkvæmda sem falla undir 1. viðauka fyrr en álit Skipulagsstofnunar liggur fyrir um mat á umhverfisáhrifum þeirra, sbr. 13. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum.
Ef framkvæmd sem tilgreind er í 2. viðauka við lög um mat á umhverfisáhrifum er talin matsskyld eru umhverfisáhrif hennar metin með sama hætti og umhverfisáhrif framkvæmda sem tilgreindar eru í 1. viðauka. Ekki er heimilt að veita leyfi fyrir þessum framkvæmdum áður en tekin hefur verið ákvörðun um matsskyldu þeirra.
