Leyfi

Skipulagsstofnun annast ekki leyfisveitingar, en vegna starfsemi eða framkvæmda sem heyra undir lög um mat á umhverfisáhrifum þarf að liggja fyrir niðurstaða Skipulagsstofnunar, álit eða ákvörðun matsskyldu, áður en leyfisveitendur mega gefa út tilskilin leyfi.

Leyfisveitendur, þar á meðal sveitarstjórnir, hafa eftirlit með því að ekki sé framkvæmt án leyfa og framkvæmt sé í samræmi við útgefin leyfi og skipulag. 

Framkvæmdaleyfi sveitarstjórnar í kjölfar álits Skipulagsstofnunar:

Leyfið skal auglýsa í Lögbirtingablaðinu og í dagblaði sem gefið er út á landsvísu innan 2 vikna frá útgáfu þess. Í auglýsingu þarf að koma fram:

  •  Ákvörðun leyfisveitanda um útgáfu leyfis
  •  Niðurstaða álits Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum og rökstudd afstaða sveitarstjórna til þess
  •  Hvar unnt sé að nálgast leyfið og álit Skipulagsstofnunar
  •  Hvert sé unnt að kæra og hver sé kærufrestur

 

Senda á Skipulagsstofnun afrit af leyfinu, sbr. 29. gr. reglugerðar um mat á umhverfisáhrifum.

Starfsleyfi: Heilbrigðiseftirlit/nefnd sveitarfélags eða Umhverfisstofnun veita starfsleyfi vegna starfsemi sem heyrir undir lög um hollustuhætti og mengunarvarnir.  Upplýsingar um starfsleyfi má fá á á heimasíðu Umhverfisstofnunar.

Aðrir leyfisveitendur geta t.d. verið:

Fiskistofa, rekstrarleyfi fyrir fiskeldi, heimildir til mannvirkja- og fiskvegagerðar og efnistöku við ár og vötn.

Orkustofnun, leyfi til að reisa og reka raforkuver með uppsettu afli yfir 1 MW nema orka frá raforkuveri sé afhent inn á dreifikerfi dreifiveitna eða flutningskerfið. Leyfi til rannsókna og nýtingar auðlinda í jörðu.

Fornleifavernd ríkisins, leyfi til að spilla, granda, breyta, hylja, laga, aflaga eða flytja úr stað fornleifar.

Skógrækt ríkisins, samþykki skógræktarstjóra til að  rjóðurfella svæði.

 

 

 

Senda grein

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica