Sameiginlegt mat
Í þeim tilvikum þegar fleiri en ein matsskyld framkvæmd eru fyrirhugaðar á sama svæði eða framkvæmdirnar eru háðar hver annarri getur Skipulagsstofnun að höfðu samráði við viðkomandi framkvæmdaraðila og leyfisveitendur ákveðið að umhverfisáhrif þeirra skuli metin sameiginlega.
Þegar framkvæmdir fara í sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum er ferlið hið sama og þegar um einstakar framkvæmdir er að ræða. Þ.e. ferlið hefst með tillögu að matsáætlun og lýkur með áliti Skipulagsstofnunar.
