Tilkynningaskyld mál
Í 2. viðauka eru taldar upp framkvæmdir sem kunna að vera matsskyldar en eru það ekki skilyrðislaust. Framkvæmdaraðila ber að senda skriflega tilkynningu til Skipulagsstofnunar um fyrirhugaða framkvæmd sem fellur undir 2. viðauka. Einnig er öllum heimilt að tilkynna framkvæmd eða bera fram fyrirspurn um matsskyldu hennar til Skipulagsstofnunar. Myndin sýnir yfirlit yfir málsmeðferð og aðkomu málsaðila að tilkynningaskyldum málum. Til að sjá ákvarðanir Skipulagsstofnunar um matsskyldar framkvæmdir skal smella á hnappinn matsskylduákvarðanir á spássíunni til vinstri.

