Mat á umhverfisáhrifum
Hlutverk Skipulagsstofnunar er að taka ákvarðanir um hvort að framkvæmdir, samkvæmt 2. viðauka við lög um mat á umhverfisáhrifum, séu matsskyldar. Þá gefur Skipulagsstofnun framkvæmdaraðila leiðbeiningar um gerð tillögu að matsáætlun og frummatsskýrslu auk þess að veita ráðleggingar um kynningu tillögunnar og skýrslunnar. Stofnunin hefur jafnframt það hlutverk að taka ákvörðun um tillögu að matsáætlun og að gefa út rökstutt álit sitt um endanlega matsskýrslu og mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar framkvæmdar. Ennfremur hefur stofnunin það hlutverk að vinna og gefa út leiðbeiningar um mat á umhverfisáhrifum og eru þær aðgengilegar hér á heimasíðunni.
Skipulagsstofnun kynnir ákvarðanir um matsskyldu og tillögu að matsáætlun auk álits stofnunarinnar og eru upplýsingar um allar framkvæmdir á tímabilinu 2000-2010 sem komið hafa til afgreiðslu stofnunarinnar að finna hér á heimasíðunni. Jafnframt er að finna úrskurði á grundvelli eldri laga um mat á umhverfisáhrifum vegna framkvæmda sem voru til athugunar hjá Skipulagsstofnun á tímabilinu 1994-2000 og 2000-2006.
Myndin að neðan sýnir yfirlit yfir ferli framkvæmda sem falla undir lög um mat á umhverfisáhrifum. Tilkynningaskyldar framkvæmdir eru á 2. viðauka við lögin en matsskyldar framkvæmdir á 1. viðauka.

