Hver ber ábyrgð á gerð umhverfismats áætlana ?
Fullt svar:
Sá aðili sem ber ábyrgð á gerð áætlunar sem fellur undir lög um umhverfismat áætlana, ber einnig ábyrgð á gerð umhverfismatsins.
Sem dæmi er það sveitarstjórn, og skipulagsnefnd sveitarfélags fyrir hennar hönd, sem ber ábyrgð á gerð umhverfismats aðalskipulags og á sama hátt er það samgönguráðuneyti, og eftir atvikum stofnanir ráðuneytisins, sem ber ábyrgð á gerð umhverfismats samgönguáætlunar. Þar sem matið er samtvinnað áætlana- og skipulagsgerðinni er það í höndum þeirra sem vinna áætlanirnar að flétta matið inn í vinnuna.
Sjá nánar:
Leiðbeiningar um umhverfismat áætlana og
lög um umhverfismat áætlana.