Réttur almennings

Hverjir geta gert athugasemdir við mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og hvenær?

Fullt svar:

Allir geta gert athugasemdir við mat á umhverfisáhrifum framkvæmda.

Almenningur getur komið með ábendingar eða lagt fram athugasemdir við kynningu framkvæmdaraðila á tillögu að matsáætlun og gefst þannig strax á hugmynda- og hönnunarstigi tækifæri til að hafa áhrif á gang mála. Auk þess er unnt að gera athugasemdir við framkvæmd þegar tillaga að matsáætlun er til umfjöllunar hjá Skipulagsstofnun og þegar frummatsskýrsla hefur verið auglýst. Þær athugasemdir sem berast á kynningartíma eru hluti þeirra gagna sem Skipulagsstofnun tekur afstöðu til við ákvörðun um tillögu að matsáætlun og við álitsgerð um mat á umhverfisáhrifum.

Eitt af markmiðum laga um mat á umhverfisáhrifum er að kynna fyrir almenningi umhverfisáhrif framkvæmda og mótvægisaðgerðir vegna þeirra og gefa almenningi kost á að koma að athugasemdum og upplýsingum áður en álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum liggur fyrir. Auk þess að leiða til aukinnar sáttar um framkvæmd getur markvisst samráð við almenning frá upphafi matsferlisins verið til mikilla hagsbóta fyrir framkvæmdaraðila. Heimamenn búa í flestum tilvikum yfir staðbundinni þekkingu sem nýst getur við hönnun framkvæmdar og mat á áhrifum hennar.


Sjá nánar:Leiðbeiningar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica