Hvert er hlutverk eftirlitsnefndar með umfangsmiklum matsskyldum framkvæmdum?
Fullt svar:
Sveitarstjórn er heimilt við umfangsmiklar matsskyldar framkvæmdir að skipa sérstaka eftirlitsnefnd sem hefur eftirlit með því að skilyrðum sem framkvæmdinni hafa verið sett sé framfylgt. Þetta er æskilegt í þeim tilvikum þar sem fyrir liggur að eftirlitið verður mjög umfangsmikið og sérhæft.
Nefndina skal skipa í samráði við framkvæmdaraðila og leyfisveitendur.
Framkvæmdaraðili ber kostnað af starfi nefndarinnar.