Hvernig er staðið að undirbúningi og auglýsingu framkvæmdaleyfis vegna matsskyldrar framkvæmdar?
Fullt svar:
Umsókn og leyfisveiting: Framkvæmdaraðili sendir sveitastjórn matsskýrslu með umsókn sinni um framkvæmdaleyfi eftir að álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar liggur fyrir. Við útgáfu leyfis þarf sveitastjórn að:
- Kynna sér matsskýrslu um framkvæmdina og kanna hvort framkvæmdin sé sú sama og lýst er í matsskýrslu.
- Taka rökstudda afstöðu til álits Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar.
- Taka afstöðu til þess hvort framkvæmdin sé í samræmi við skipulagsáætlanir.
Víki sveitastjórn frá niðurstöðum í áliti Skipulagsstofnunar þarf að færa rök fyrir því í framkvæmdaleyfinu.
Auglýsing:
Sveitarstjórn þarf að auglýsa ákvörðun sína um útgáfu framkvæmdaleyfis innan 2 vikna frá útgáfu þess:
- Í Lögbirtingablaðinu og
- í dagblaði sem gefið er út á landsvísu.
Í auglýsingunni þarf að koma fram:
- Ákvörðun sveitarstjórnar um útgáfu leyfis og afstaða hennar til álits Skipulagsstofnunar.
- Hver hafi verið niðurstaða álits Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum.
- Hvar unnt sé að nálgast leyfið og álit Skipulagsstofnunar.
- Hvert sé unnt að kæra og hver sé kærufrestur.
Sveitastjórn sendir Skipulagsstofnun afrit af framkvæmdaleyfinu eftir að það hefur verið gefið út.
Kæra og kærufrestur:
Framkvæmdaleyfi sveitarstjórnar er kæranlegt til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála og er kærufrestur einn mánuður frá því leyfið var auglýst.
Sjá nánar:Leiðbeiningar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda