Rannsókna- og ráðstefnugögn
Hlutverk Skipulagsstofnunar er skv. skipulags- og byggingarlögum m.a. að sinna og stuðla að rannsóknum á sviði skipulags- og byggingarmála, mats á umhverfisáhrifum framkvæmda og umhverfismats áætlana í samstarfi við innlenda og erlenda aðila.
Skipulagsstofnun vinnur að og er þátttakandi í eftirfarandi verkefnum:
Stutt námskeiði um umhverfisáhrif jarðhitavirkjana. Fyrirlestrar og þátttaka í málstofum á ýmsum stofnunum í Jakarta, Indónesíu. (e: Short course on the operation of Geothermal Actvities in and under Pristine Forest Areas in Indonesia). (Verkefni fyrir Íslenskar Orkurannsóknir).
Eldri verkefni sem Skipulagsstofnun hefur komið að (smella má á ákveðin verkefni til að fræðast frekar um þau):
- Urban forvaltning
- Fremtidens Nordiska Stad
- Byggingareftirlitið - könnun á störfum og starfsaðstöðu byggingarfulltrúa (útg. 2008)
- Spatial Planning in Northern Peripheral Regions (SPN). NPP verkefni (lokaskýrsla óútgefin)
- Landsskipulag og umhverfismat áætlana
- Forsendur fyrir innleiðingu tilskipunar ESB um umhverfismat áætlana (2003)
- Skipulagsgerð á landsvísu á Norðurlöndum (2004)
- Umhverfismat áætlana og mat á umhverfisáhrifum framkvæmda - tengsl og samþætting (Vegagerðin og Orkuveita Reykjavíkur)
Rannsóknarverkefni unnin um mat á umhverfisáhrifum
Skipulagsstofnun hefur átt aðkomu að nokkrum rannsóknarverkefnum sem hafa verið unnin um mat á umhverfisáhrifum. Auk þess er stofnuninni kunnugt um nokkur verkefni sem hafa verið unnin án þess að stofnunin hafi komið þar nærri. Hér að neðan eru nokkur þeirra nefnd til sögunnar en auk þeirra má benda á að við háskóla landsins hafa verið unnin nokkur verkefni sem fjalla, að einhverju eða öllu leyti, um mat á umhverfisáhrifum.
VSÓ-ráðgjöf vann verkefni fyrir Vegagerðina um umhverfismat áætlana. Áherslur, ávinningur og undirbúningur. Sjá skýrslu (2002)
VSÓ-ráðgjöf vann verkefni fyrir Vegagerðina um vegagerð og mótvægisaðgerðir. (2003)
VSÓ-ráðgjöf vann verkefni í samvinnu við Vegagerðina og Skipulagsstofnun um undirbúningur matsvinnu hjá Vegagerðinni. (2004)
VSÓ-ráðgjöf útbjó handbók umhverfismats vegáætlana. Ferli umhverfismats og leiðbeiningar fyrir matsvinnu. Verkefnið var unnið fyrir Vegagerðina. Sjá skýrslu (ódagsett)
VSÓ-ráðgjöf vann viðhorfskönnun um skilvirkni mats á umhverfisáhrifum. Verkefnið var unnið með stuðningi Vegagerðarinnar og Landsvirkjunar. Sjá skýrslu (2004)
Línuhönnun vann verkefni um aðferðir við mat á landslagi. Verkefnið var unnið með stuðningi Rannsóknarsjóðs Vegagerðarinnar, Landsvirkjunar og Landsnets. Sjá skýrslu (2005)
VSÓ-ráðgjöf vann verkefni fyrir Vegagerðina um beltanálgun í mati á umhverfisáhrifum. Sjá skýrslu (2005)
Þekkingarsetur Þingeyinga vann verkefni um innleiðingu matsáætlana í mati á umhverfisáhrifum.
Verkefnið var unnið með stuðningi Rannsóknarsjóðs Vegagerðarinnar og í samvinnu við Skipulagsstofnun. Sjá skýrslu (2006)
VSÓ-ráðgjöf vann verkefni um áhrif 37. greinar náttúruverndarlaga á framkvæmdir.
Verkefnið var unnið með stuðningi Rannsóknarsjóðs Vegagerðarinnar, en í samstarfi við Skipulagsstofnun og Umhverfisstofnun. Sjá skýrslu (2008)
Ráðstefnugögn
Málstofa - LÝSING og LAGASKIL
Skipulagsstofnun bauð kjörnum fulltrúum og starfsmönnum sveitarfélaga, er fara með skipulagsmál, til málstofu í Háskólanum í Reykjavík þann 6. júní sl. Til umfjöllunar var kynning og efni lýsingar fyrir svæðis-, aðal- og deiliskipulag samkvæmt nýjum skipulagslögum nr. 123/2010 og lagaskil fyrrum skipulags- og byggingarlaga og nýrra skipulagslaga þar að lútandi.
Framsögn var í höndum Guðrúnar Höllu Gunnarsdóttur og Málfríðar Klöru Kristiansen og Hafdís Hafliðadóttir stýrði fundi.
Samráðsfundur Skipulagsstofnunar og sveitarfélaga
Árlegur samráðsfundur Skipulagsstofnunar og sveitarfélaga var haldinn í Reykholti, Borgarbyggð dagana 16. og 17. sept.
Vegna sveitarstjórnakosninganna sl. vor var ákveðið að halda fundinn að þessu sinni að hausti en næsti fundur verður haldinn vorið, 2011. Fundurinn var ágætlega sóttur og tókst í alla staði vel.
Hér að neðan eru glærur allflestra fyrirlestranna en þeir fyrirlestrar sem vantar verða settir inn við fyrsta tækifæri.
Setning samráðsfundar - Stefán Thors, skipulagsstjóri
Hlutverk og ábyrgð, aðalskipulag - Hafdís Hafliðadóttir, Skipulagsstofnun
Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2008-2020 - Jóhann Birkir Helgason, Ísafjarðarbær
Svæðisskipulag í fortíð, nútíð og framtíð - Stefán Thors, Skipulagsstofnun
Svæðisskipulag Suðurnesja, nýjar áherslur - Ásmundur Friðriksson, Sveitarfélagið Garður
Ný skipulagslög og áherslur Sambands íslenskra sveitarfélaga á sviði skipulagsmála - Guðjón Bragason, Samband íslenskra sveitarfélaga
Mat á umhverfisáhrifum: Ábendingar og leiðbeiningar - Rut Kristinsdóttir, Skipulagsstofnun
Náttúruhamfarir, hættumat og hættumatsrammi Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar - Trausti Jónsson, Veðurstofa Íslands
Nýlegir úrskurðir úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dómar og áhrif þeirra á skipulagsgerð og mat á umhverfisáhrifum - Þorvaldur Þorsteinsson, Skipulagsstofnun
Deiliskipulag: Ábendingar og leiðbeiningar - Málfríður K. Kristiansen, Skipulagsstofnun
