Rannsókna- og þróunarsjóður
Umsóknum um styrki úr rannsókna- og þróunarsjóði Skipulagsstofnunar þarf að skila fyrir 1. ágúst og ákvörðun um styrki til einstakra verkefna er tekin fyrir 1. október. Greiðslum er skipt í tvennt 25% er greitt þegar endanleg verkáætlun liggur fyrir og 75% þegar niðurstöðum hefur verið skilað til Skipulagsstofnunar.
Lögð er áhersla á hagnýtar rannsóknir og nýtingu þekkingar- og gagnaöflunar á starfssviði Skipulagsstofnunar. Skipulagsstofnun getur haft frumkvæði að rannsóknum og gert er ráð fyrir að hluti fjármagns í sjóðnum verði notað til að styrkja verkefni sem teljast til grunnrannsókna og tengjast starfsemi Skipulagsstofnunar.
Í verkefnaáætlun fyrir árið 2012 eru kynntar megináherslur í starfsemi Skipulagsstofnunar næstu 3 árin og verða þær hafðar til hliðsjónar við ákvarðanatöku um úthlutanir. Þessar áherslur eru:
- Landsskipulagsstefna og samþætting áætlana
- Tengsl skipulags, umhverfismats áætlana og mats á umhverfisáhrifum framkvæmd
- Skipulag haf- og strandsvæða
- Landslag í mati og skipulagi
- Landbúnaðarland, flokkun o. fl
- Ný tegund aðalskipulagsáætlana
- Búsetumynstur og dreifing byggðar
- Framkvæmd nýrra laga, samráð og leiðbeiningar
- Gagnamál, aðgengi og framsetning
