Mál í kynningu


20.3.2014

Efnistaka í Seljadal í Mosfellsbæ

Tillaga að matsáætlun í kynningu

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til 7. apríl 2014

Efla verkfræðistofa, f.h. malbikunarstöðvarinnar Höfða, hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna efnistöku í Seljadal í Mosfellsbæ.  Tillaga að matsáætlun   liggur frammi til kynningar frá 20. mars 2014 til 7. apríl 2014 hjá Skipulagsstofnun.  Tillöguna er unnt að nálgast á heimasíðu Efla hf: www.efla.is

Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.  Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 7. apríl 2014 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.  Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.


Hér má nálgast auglýsta tillögu