Mál í kynningu


28.7.2014

Auglýsing um tillögur að breytingum á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022, Rangárflatir á Hellu, Hallstún og Jónskot úr landi Kots

Frestur til athugasemda er til 28. ágúst 2014


Samkvæmt 1. mgr. 31. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar neðangreindar  tillögur að breytingum á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010/2022:

 

1311031 - Rangárflatir, Hellu, stækkun þjónustu- og athafnasvæðis

Sveitastjórn Rangárþings ytra hefur samþykkt að gera breytingar á landnotkun í aðalskipulagi. Gerð verður breyting á skipulagsmörkum þjónustu- og athafnasvæðis við Rangárflatir á Hellu, þar sem gert er ráð fyrir að svæðið stækki til suðurs. Gerð verður nánari grein fyrir öðrum þáttum í deiliskipulagi í samræmi við aðalskipulag.

 

1310043 - Hallstún, Rangárþingi ytra, breyting á landnotkun

Sveitastjórn Rangárþings ytra hefur samþykkt að gera breytingar á landnotkun í aðalskipulagi. Gerð verður breyting á landnotkun þar sem 3 ha. spildu landbúnaðarsvæðis verður breytt í frístundasvæði, merkt F72 á uppdrætti aðalskipulags. Einnig verði frístundasvæði minnkað á svæði merktu F27, þar sem 40 ha. svæði verður breytt í landbúnaðarsvæði. Í greinargerð, kafla 4.3, bætist við í töflu: „F72 Hallstún - Gert er ráð fyrir allt að 3 ha. svæði fyrir allt að 5 lóðir“. Gerð verði einnig breyting á núverandi texta í töflu: „F27 Hallstún – Gert er ráð fyrir allt að 5 lóðum á um 12 ha. svæði“. Gerð verður nánari grein fyrir öðrum þáttum í deiliskipulagi í samræmi við aðalskipulag.

 

1401006 - Jónskot úr landi Kots

Sveitastjórn Rangárþings ytra hefur samþykkt að gera breytingar á landnotkun í aðalskipulagi. Gerð verður breyting á landnotkun þar sem 3 ha. spildu úr landbúnaðarsvæði verður gert að frístundasvæði, merktu F73. Á svæðinu eru nú þegar tvö frístundahús. Í greinargerð, kafla 4.3, bætist við í töflu: „F73 Jónskot í landi Kots – Gert er ráð fyrir allt að 3 ha. svæði fyrir allt að 5 lóðir“. Gerð verður nánari grein fyrir öðrum þáttum í deiliskipulagi í samræmi við aðalskipulag.

 

Samtímis eru kynntar tillögur að deiliskipulagi á viðkomandi svæðum, samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Ofantaldar tillögur liggja frammi hjá skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 1-3, Hellu, á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is og hjá Skipulagsstofnun á Laugavegi 166 í Reykjavík. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 28. ágúst 2014. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti, birgir@ry.is.

 

Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra,

Haraldur Birgir Haraldsson.