Pistlar
Stefán Thors, skipulagsstjóri ríkisins
Það sem einkennir góðar skipulagsáætlanir er vel rökstudd, skýr og markviss stefnumörkun á mannamáli. Til þess að stuðla að gerð góðra skipulagsáætlana er grundvallaratriði að hægt sé að nálgast grunnupplýsingar um stöðu mála því þeim mun auðveldar sem það er að nálgast upplýsingar þeim mun meiri tíma er hægt að verja í stefnumótun. Hér á landi höfum við lög og reglugerð um gerð skipulagsáætlana, við höfum stofnanir ríkis og sveitarfélaga sem annast öflun nauðsynlegra grunnupplýsinga og við höfum sveitarstjórnir sem sjá um framkvæmd skipulagsáætlana.
Í skipulags- og byggingarlögum kemur fram að markmið laganna er m.a. að stuðla að skynsamlegri og hagkvæmri nýtingu lands og landgæða, tryggja varðveislu náttúru- og menningarverðmæta og koma í veg fyrir umhverfisspjöll og ofnýtingu með sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Þetta eru háleit markmið og í raun ágætlega skynsamleg. Vandinn verður hins vegar alltaf að skilgreina þarfirnar og leiðir til að uppfylla þær á sem sjálfbærastan hátt.
Í skipulagsreglugerð kemur fram að í skipulagsáætlunum skuli gera grein fyrir markmiðum viðkomandi stjórnvalda og ákvörðunum um framtíðarnotkun lands, fyrirkomulagi byggðar og þar á að lýsa forsendum þeirra ákvarðana sem teknar hafa verið. Forsendur ákvarðana geta verið fjölmargar og fjölbreyttar og varðað t.d. þróun íbúafjölda, þörf fyrir nýtt húsnæði og samgöngumannvirki.
Til þess að ríki og sveitarfélög geti tekið skynsamlegar ákvarðanir þurfa því að liggja fyrir aðgengilegar upplýsingar um stöðu mála og líklega þróun. Fyrir ekki svo löngu síðan var við skipulagsgerð hægt að nálgast ýmsar upplýsingar hjá Þjóðhagsstofnun um húsnæði sem var tekið í notkun og í byggðabrunni Byggðastofnunar um skiptingu íbúafjöldans eftir sveitarfélögum og eftir atvinnugreinum og spá um þróun. Þessar upplýsingar og úrvinnsla úr þeim voru og eru meðal þeirra forsendna sem liggja til grundvallar áætlanagerð og ákvarðanatöku . Á þessu varð síðar breyting þegar Þjóðhagsstofun var lögð niður og Byggðastofnun fékk breytt hlutverk. Enn hefur ekki verið bætt úr þeim mikla missi sem varð við brotthvarf þessara upplýsingabrunna.
Skipulagsstofnun hefur af og til á undanförnum árum bent á nauðsyn þess að gert verði átak í því að auðvelda öflun, aðgengi og notkun grunnupplýsinga við skipulagsgerð. Það á við um landfræðilegar upplýsingar, upplýsingar um íbúa og skiptingu í atvinnugreinar og upplýsingar um hina ýmsu flokka húsnæðis í byggingu.
Skipulagsstofnun og Byggðastofnun vinna nú að því að finna leiðir til að endurvekja og bæta gagnagrunn á landsvísu í þeim tilgangi að styrkja áætlanagerð ríkis og sveitarfélaga. Þessi vinna mun vonandi leiða fljótlega til breiðara samstarfs við Hagstofuna, Fasteignaskrá Íslands og Landmælingar Íslands og fleiri stofnanir sem búa yfir upplýsingum sem nýtast við áætlanagerð.
Þar við bætist að forstöðumenn stofnana sem heyra undir umhverfisráðneytið sendu ráðherra minnisblað í mars 2009 þar sem gerð er tillaga að aðgerðum til úrbóta í gagnamálum. Þessar tillögur gengu út á það að:
1. Marka skýra heildarstefnu fyrir opinbera aðila um öflun, varðveislu og miðlun landupplýsinga
2. Skilgreina hvaða grunngagna skuli aflað fyrir opinbert fé, nákvæmni gagna og lágmarks gæði
3. Samræma innkaup á landfræðilegum gögnum og tryggja lágmarks gæði
4. Tryggja að landfræðileg gögn sem aflað hefur verið fyrir opinbert fé séu aðgengileg öllum án gjaldtöku
5. Efla samstarf og samvinnu þeirra stofnana sem vinna með landfræðileg gögn og samræma vinnubrögð
6. Innleiða INSPIRE-tilskipun Evrópusambandsins um aðgang að upplýsingum um umhverfismál
7. Nýta reynslu nágrannaþjóða
Markmiðið er að draga verulega úr þeim tíma og þeim fjármunum sem varið er til upplýsingaöflunar og verja í staðinn tímanum til að greina upplýsingar, bregðast við breytingum og marka stefnu.
Vorið 2010 lagði umhverfisráðherra fram á Alþingi frumvarp til laga um grunngerð landupplýsinga. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir styrkingu Landmælinga Íslands á þessu sviði og bætir verulega úr verði frumvarpið að lögum.
Skipulagsstofnun hefur lagt mikla áherslu á að þegar hugað er að sameiningu stofnana, eins og nú er verið að gera, sé horft á verkefnin sem falin eru hinum ýmsu stofnunum, hvernig þeim er fyrirkomið og sinnt í dag og hvernig mætti hugsanlega vinna að verkefnunum á markvissari hátt með betri nýtingu á þeim mannafla og því fjármagni sem varið er til verkefnanna. Til að hægt sé að vinna að tillögugerð um stefnumörkun í landnotkun hvort sem er á landsvísu eða fyrir einstök sveitarfélög þarf að vera greiður aðgangur að landfræðilegum upplýsingum, upplýsingum um fasteignir og upplýsingum um mannfjölda og atvinnumál. Þar við bætast að sjálfsögðu upplýsingar og gögn frá rannsóknarstofnununum um gróður, jarðfræði, fornleifar o. fl.
Nú þegar sveitarfélögin þurfa upp til hópa að endurmeta aðstæður og endurskoða áður markaða stefnu í skipulagsmálum sem oftar en ekki miðaðist við óstöðvandi vöxt, er algjörlega nauðsynlegt að gagnagrunnurinn sé réttur og aðgengilegur. Öðru vísi verður ekki hægt að vinna að markvissri áætlanagerð. Sá tími er liðinn að sveitarstjórnir geti verið að gera ráð fyrir 5 – 20% árlegri fjölgun íbúa í sínu aðalskipulagi. Nú þarf að horfast í augu við raunveruleikann og skipuleggja innávið, nýta það sem fyrir er og hafa sjálfbæra þróun að leiðarljósi.
Stjórnvöld þurfa að vera viðbúin með sínar áætlanir þegar hjólin fara aftur að snúast og það er því mjög mikilvægt að þau noti það svigrúm sem nú hefur skapast til að hugsa hlutina upp á nýtt, auka gæði áætlanagerðar og leggja áherslu á að fylgja eftir góðum ásetningi.
Markviss söfnun og varðveisla grunnupplýsinga og úrvinnsla og fullkomið opið aðgengi er það sem þarf. Það eitt og sér er svo auðvitað engin trygging fyrir því að fáum betri skipulagsáætlanir og viðvarandi vöktun og framfylgd en eftir að úr hefur verið bætt er alla vega ekki hægt að kenna skorti á upplýsingum um klúður í skipulags- og byggingarmálum. Skipulagsstofnun vill leggja sitt af mörkum og opnaði í byrjun júní 2010 fyrir almennan aðgang að skipulagsvefsjá eftir langan og strangan undribúning. Í skipulagsvefsjánni er hægt að nálgast aðal- og deiliskipulagsáætlanir sveitarfélaga sem hafa verið skannaðar og mörk deiliskipulagssvæða færð inn á loftmyndagrunn Loftmynda ehf. Þá opnaði Skipulagsstofnun á sama tíma nýja heimasíðu sem er byggð upp með það sama að markmiði að bæta aðgang að upplýsingum.
Með sameinuðu átaki ráðuneyta og ríkisstofnana verður vonandi hægt að koma því til leiðar á næsta áratug að allar nauðsynlegar upplýsingar fyrir skipulagsgerð verði auðveldlega aðgengilegar og kostnaður við öflun upplýsinga því brot af því sem hann er í dag. Það hefur í för með sér að gera verður kröfu um það að gæði skipulagsáætlana aukist til muna.
