Fréttir


10.4.2014

Breyting á Húsavíkurhöfn og lagning Bakkavegar, Norðurþingi

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að breyting á Húsavíkurhöfn og lagning Bakkavegar í Norðurþingi skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.



Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.
Hana er einnig að finna hér


Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 15. maí 2014.