Norrænt samstarf

Skipulagsyfirvöld á Norðurlöndum

Skipulagsstofnun tekur þátt í árlegum samráðsfundum norrænna skipulagsyfirvalda og lögfræðinga sem starfa á sviði skipulags- og byggingarmála. Einnig tekur stofnunin þátt í samstarfi norrænna embættismanna um aðalskipulag, byggingarmál og umhverfismat.

Danmörk: By- og landskabsstyrelsen www.blst.dk
Finnland: Miljöministeriet www.ymparisto.fi
Noregur: Miljöverndepartmentet www.md.dep.no
Svíþjóð: Boverket www.boverket.se

 

Skipulagsyfirvöld á Grænlandi

Sendinefnd Grænlendinga heimsótti Skipulagsstofnun árið 2009 vegna mats á umhverfisáhrifum álvers og orkuvera sem eru í undirbúningi á austurströnd Grænlands.  Grænlendingar eru sífellt að taka við fleiri stjórnsýsluverkefnum sem til þessa hefur verið stjórnað af Dönum. Grænlendingar leituðu til Íslands vegna reynslu af sambærilegum verkefnum hér á landi.





Senda grein

Fyrirmyndarstofnun 2013

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica