Annað samstarf

Jarðvarmavirkjun í Níkaragva

Skipulagsstofnun og ÍSOR hafa unnið að því fyrir hönd Þróunarsamvinnustofnunar að aðstoða við undirbúning jarðvarmavirkjana í Níkaragva.  Skipulagsstofnun hefur leiðbeint um mat á umhverfisáhrifum jarðvarmaverkefna. Framlag Skipulagsstofnunar hefur falist í aðstoð við ráðuneyti og eftirlitsstofnanir á vettvangi en einnig hefur stofnunin haldið námskeið á Íslandi fyrir hóp sérfræðinga sem kom frá Níkaragva til Íslands. Verkefnið fór fram árin 2008 og 2009.

Sjá nánar á heimasíðu ÞSSÍ  


Skipulagsyfirvöld í Skotlandi

Skipulagsstofnun Skotlands og Íslands höfðu starfsmannaskipti í nokkra mánuði árið 2008.  Ávinningur Skipulagsstofnunar af þeim skiptum hefur verið ótvíræður, ekki síst vegna betra aðgengi að sérfræðiþekkingu og leiðbeiningum sem nýtast hérlendis.

Skipulagsstofnanirnar hyggja á frekara samstarf. Vef skoskra skipulagsyfirvalda má finna hér: Directorate for the Built Environment


Senda grein

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica