Svæðisskipulag miðhálendisins

Á miðhálendinu er í gildi svæðisskipulag miðhálendis sem staðfest var 1999 með áorðnum breytingum á grundvelli þágildandi skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1998. Svæðisskipulagið tekur til miðhálendisins eins og það var afmarkað af sérstakri samvinnunefnd miðhálendisins. Samvinnunefndin fór með gerð svæðisskipulagsins og hafði það hlutverk að samræma aðalskipulag sem liggur að miðhálendinu við svæðisskipulag miðhálendisins. Samvinnunefnd miðhálendis lauk störfum við gildistöku skipulagslaga nr. 123/2010 1. janúar 2011. Sjá heimasíðu samvinnunefndar miðhálendisins

Í skipulagslögum nr. 123/2010 er gert ráð fyrir að landsskipulagsstefna feli í sér stefnu um skipulagsmál á miðhálendi Íslands og komi í stað svæðisskipulags fyrir miðhálendi Íslands. Umhverfisráðherra mun eigi síðar en árið 2012 leggja fram á Alþingi tillögu til  þingsályktunar um landsskipulagsstefnu.

Þar til landsskipulagsstefna hefur verið samþykkt mun Skipulagsstofnun gæta þess að aðalskipulag sveitarfélaga sé í samræmi við svæðisskipulag miðhálendis Íslands og þá stefnumörkun sem þar kemur fram. 


 

Senda grein

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica