Samráðsvettvangur
Landsskipulagsstefna er unnin í víðtæku samráði við sveitarfélögin og helstu hagsmunaaðila. Samkvæmt reglugerð um landsskipulagsstefnu skal koma á fót sérstökum samráðsvettvangi vegna mótunar landsskipulagsstefnu og í honum skulu eiga sæti fulltrúar sveitarfélaganna og samtaka þeirra, hlutaðeigandi opinberra stofnana, fyrirtækja sem sinna uppbyggingu og rekstri grunngerðar ásamt fulltrúum samtaka á sviði atvinnuvega og náttúru- og umhverfisverndar. Aðrir aðilar en þeir sem fyrr eru tilgreindir geta einnig óskað eftir því við Skipulagsstofnun að fá aðild að samráðsvettvangi.
Samráðsvettvangur er tengslanet sem gefur fjölmörgum aðilum möguleika á að fylgjast með og eftir atvikum taka þátt í mótun landsskipulagsstefnu. Skipulagsstofnun leggur fram hugmyndir sínar til kynningar og umræðu á samráðsvettvangi og leitar jafnframt eftir ábendingum og tillögum. Fulltrúum á samráðsvettvangi er gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum og tillögum með gagnvirkum hætti á sérstöku vefsetri sem Skipulagsstofnun kemur á fót vegna vinnu við landsskipulagsstefnu. Einnig stendur þeim til boða að sækja fundi og málþing sem Skipulagsstofnun boðar til. Samráðsvettvangur gegnir einnig hlutverki í hinu lögformlega samráðsferli við kynningu á lýsingu og auglýsingu tillögu að landsskipulagsstefnu.
Samráðsvettvangur er eitt af lykilatriðum í mótun landsskipulagsstefnu. Stefnan er ekki bindandi fyrir sveitarfélögin og þess vegna er sú samræða sem fer fram í ferlinu mikilvæg fyrir framgang hennar.
Samráðsvettvangur vegna landsskipulagsstefnu 2012 - 2024
Sérstakur samráðsvettvangur hefur verið stofnaður vegna vinnu við gerð landsskipulagsstefnu 2012-2024. Send voru 190 bréf þar sem sveitarfélögum, opinberum stofnunum, fyrirtækjum sem sinna grunngerð og samtökum á sviði atvinnuvega og náttúruverndar var boðin þátttaka. Einnig hefur Skipulagsstofnun auglýst og boðið þeim aðilum eða einstaklingum sem telja sig hafa hagsmuna að gæta eða hafa sérstakan áhuga á að fylgjast með, að skrá sig á samráðsvettvang. Fjölmargir aðilar hafa þegið boðið og tilnefnt fulltrúa eða tengiliði. Yfir eitt hundrað nöfn eru nú á sérstökum póstlista.
Listi yfir fulltrúa eða tengiliði á samráðsvettvang í pdf skjali
